Klukkan

Auglýsing

ég ..

  • Nafn: Agnes Björk
  • Netfang: agnes_bjork@hotmail.com
  • Atvinna: Ekkert.
  • Hjúskaparstađa: Föstu.
  • Um mig: Ég er 16 ára stelpa og kem frá Reyđarfirđi . Ég er í Menntaskólanum á Egilsstöđum og nýt ţess í botn . :) . Meira um mig í "agnesbjörk" dálknum. ;)
  • Annađ: Kviiiittta í gestabók takk !

Jaamm....

19. maí 2008 klukkan 16:45


Jáms, sit hérna í vinnunni og hef það lítið að gera að ég ákvað að blogga.

Það er alveg eitthvað að frétta af mér. Kláraði skólann í seinustu viku og mætti í vinnu strax daginn eftir. Náði öllu og er ekkert smáá ánægð :D Þannig að ég er komin í sumarfrí, sem að er varla frí þar sem að ég þarf að vera í vinnu frá 8-5 en það er svosum ágætt.

Í seinustu viku fóru mamma og pabbi suður því að hún móðir mín var að fara í aðgerð og þau skildu litlu stelpuna sína eina eftir fyrir austan með hús, kött og fyrirtæki. En að sjálfsögðu reddaði ég því öllu , húsið er enn heilt, kötturinn á lífi og fyrirtækið stendur ennþá Glottandi   Svolítið erfitt að vera ein hérna fyrir austan en sem betur fer á ég yndislega vini og góðan kærasta sem að héldu mér busy og stóðu við bakið á mér. <3
-Aftur á móti finnst mér mjöög óþægilegt þegar fólk kemur og hrósar mér og segjir hversu ótrúlega dugleg og sterk ég sé í þeim málum sem að eru í gangi hjá okkur fjölskyldunni en það er bara alls ekki ég sem að er dugleg og sterk í þessu heldur er það mamma mín sem er svo dugleg að ég algerlega dáist að henni. :*

eeeen allavega sæta tengdamamman mín tók það sko ekki í mál að ég væri bara ein heima hjá mér svo að hún eiginlega hýsti mig svona pínu seinustu viku og ég var svo heppin að hann Birkir var einmitt með mér niðrí Stjörnu svo að við vorum ferðafélagar á morgnanna . Á föstudaginn var svo stelpupartý hjá mér , við Ragna ætluðum fyrst að fara í eitthvað grill á eskifirði kl 6 en nenntum því hvorugar svo að við ákváðum að grilla okkur bara pylsur heima. sem að endaði með því að hita pylsu og pylsubrauð í örbylgjuofni og grillpartýið okkar góða endaði þannig að við sátum 2 inní eldhúsi með upphitaðarpulsur , ég með mjólk og ragna með rauðvín. Hahahha ... niiiice byrjun á góðu kvöldi. Svo byrjuðu stelpurnar að týnast inn og um kvöldið vorum við orðnar nokkrar sem að sátum við eldhúsborðið að spjalla, mikill hávaði og miikið gaman !
Á laugardaginn ætluðum við Gréta svo á Eskifjörð. Brynjar var hjá mér og Anna&Baldur komu í heimsókn og við sátum á spjalli í marga marga tíma .. um 12 kom Gréta og kl svona 1 fóru Anna og Baldur heim að sofa og við Gréta skutluðum Brynjari á fáskrúðsfjörð og svo fórum við á eskifjörð að kíkja í útskriftapartýið til Steina. Þaaar var sko þröngt á þingi og alveg ótrúlega gaman. Leit af Grétu "driver" í svona hálftíma og þegar ég fann hana aftur var hún að sjálfsögðu orðin vel drukkin svo að hún var ekki mikið lengur driver. Um 5 leytið skutlaði Jón Páll okkur heim, við Gréta fórum heim til mín og fengum okkur að éta og svo að lúllast.. !
í gær kom svo sæti pabbinn minn heim eftir langa bið, hefði samt verið betra að fá alla familyuna austur een það var ekki í boði í augnablikinu. Mamma kemur voonandi heim næstu helgi og svo bíð ég bara eftir Lindu og Önju. Brosandi


- Það er alveg best í heimi að vera komin í sumarfrí, langþráð bið og ég get hreinlega ekki beðið eftir öllum djammhelgunum sem að eru framundan. Þó svo að það sé alveg ömurlegt að allar mínar vinkonur eru í vaktavinnum svo að við náum aaldrei að hittast allar saman. En við reynum að plögga þessu.
Fyrsta undankeppni Eurpvision svo á morgun og önnur á fimmtudag og svo aðalkeppnin á laugardag. Ég veit ekki alveg hvað ég á að gera, hvort að ég eigi að fara í europartý á laugardaginn og fara svo á ball á annaðhvort Esk þar sem Ragna & co. troða upp með Eurolögum eða fara á ball á Egs með Skímó, eeeeða vera bara heima með mömmu&pabba sem að vera vonandi komin heim og horfa á Euro með þeim og hafa það nice. hmmm..........

- Vil svo koma því að hversu ógeðslega mikið mér leiðist. ÉG ER BÚIN AÐ VINNA BUBBLES , looooksins (a) ogogogog lenti í 46 sæti á einhverjum lista Svalur
óóókei, er farin að vinna.... heeeh !


*TIL SÖLU* ....

10. maí 2008 klukkan 18:32

Er með 4 skópör sem að ég virkilega þarf að losna við.Ef að ykkur lýst á eitthvað af þessu endilega hafið samband við mig í 865-1992 eða agnes_bjork@hotmail.com   ;





óóógeðslega sætir svartir skór algerlega ónotaðir nr. 36  -algerlega ónotaðir.

 

á hlið. hællinn er ekkert svo hár.

 

hauskúpu VANS skór. nr 37  -algerlega ónotaðir

 

.

 

Levi's skór nr. 37 - algerlega ónotaðir

 


 

ýkt sætir bleikir skór nr. 36-37. -búin að nota þá svona 2-3svar.

 

..

mjög pirrađ & vćmiđ blogg.

04. maí 2008 klukkan 21:55


Úff , prófvikan byrjuð og í staðinn fyrir að læra hef ég ákveðið að taka mig til í andlitinu og blogga pínu lítið fyrir ykkur.
Ég er búin með 2 próf, stærðfræði og íþróttir og á eftir 3, íslensku, sálfræði og ensku ! Íslenska er án efa leiðinlegasta fag allra tíma og mig langar að æla og gráta þetta er svo leiðinlegt !! Ég get bara með engu móti einbett mér að þessu efni. Byrjaði að læra í gær og jújú, er alveg að ná einhverju en úff .. geeeet ekki setið yfir þessu í langan tíma í einu . Þess vegna ákvað ég að taka mér enn eina pásuna og blogga fyrir ykkur.

Fyrir utan grátinn frá íslenskunni sit ég núna hér og græt yfir myndböndum á youtube. Ég asnaðast inná einhvern link með myndböndum af Child - Abuse. Hversu ógeðslegur er heimurinn orðinn ? Það eru hryllilega myndir af börnum þarna, svoo sorlegir textar og staðreyndir að mér líður svo ílla í sálinni. Líka einsog Josef Fritz , svoleiðis skrímsli eiga ekki að fá að vita hvað vellíðan er. Djöflusins ógeð er sá maður ! Vá , ég fæ bara viðbjóð og ógeð þegar ég les þessar fréttir . Að loka sína eigin dóttir inní í 24 ár !! og hafa þá löngun að nauðga henni og búa til 7 börn með henni. Hversu ógeðslega illa innræktaður þarf sá aðili að vera.
Svo fékk ég tölvupóst um daginn um börn í Afríku. 9 mánaða gamalli stelpu nauðgað af 6 karlmönnum !!!!!!!! og öll þessi börn í Afríku sem að þurfa að byrja að sjá um sig sjálf 5 ára eða eitthvað . Guð mér finnst þetta svo hryllilegt og það á enginn krakki þetta skilið. Þegar maður hugsar útí þetta þá sér maður hversu æðislegt líf ég hef átt. Til þess að þakka fyrir það mun ég einn daginn fara þarna út í sjálfboðastarf!  Mig langar helst að taka öll þessi börn til mín og gefa þeim gott líf en ég get það nú varla...eða hvað?! Skömmustulegur

Það er nú alveg ýmislegt annars búið að ganga á hjá mér. Fór til akureyrar 11-13 apríl minnir mig. Við Brynjar vorum nú fancý á því og vorum bara á Hótel KEA  , ýkt þægilegt. Þessi helgi var æðisleg í alla staði og skemmti ég mér allavega fáránlega vel. Seinasta miðvikudag fórum ég, mamma, pabbi og Brynjar svo suður og vorum alveg fram á sunnudag. Mesti tíminn fór í það að rúnta með nýja drivernum, Sigga og var það nú alveg ágætt ! Verslaði mér líka eitthvað, fór í bíó og lá í fjölskyldukúri.
Líifð gengur nú samt ekki alltaf á rósum einsog hjá öllum og hefur ýmsilegt komið uppá seinustu viku og á svoleiðis tímum sér maður hversu hryllilega mér þykir vænt um fjölskylduna mína. Þau eru sko æðislegust í alla staði ! :*:*

Svooo er það Eurovision 20,22 og 24 maí og miiikill spenningur kominn í mína !! Er nú byrjuð að hlusta á þessu lög og þessu uppáhalds mikið spiluð hér á heimili. Við keppum 22 maí og það er nú ekki mikið af góðum lögum en það ótrúlega er að við erum að keppa við öll þessi góðu !! Öskrandi Allavega eru mín uppáhalds Búlgaría, Armenía, Svíþjóð, Rússland, Ísrael, Grikkland og Úkraína.

Ég er nú svo komin með sumarvinnu en það veðrur bara gamla góða Stjarna. Hehe , ætlaði mér sko aldeilis ekki að fara að vinna þar en nú standa málin öðruvísi og ég fer þangað. Verð samt meira á skrifstofunni heldur en inná lager oog þetta er frá 8-5 og frí um helgar svo að þetta verður alveg ágætt :)

En ætla að láta þetta gott heita og halda áfram að lesa goðafræðina................ Fýldur


 


<33



ah, frænkuknúsin eru sko langbest <3:*

jćjajćja....

06. apríl 2008 klukkan 01:33

Jæja góða kvöldið. Ég hef tekið eftir því sjálf að ég er ekkert hinn besti bloggari. En þannig er mál með vexti að ég hef bara svo óttarlega lítið að tala um hérna svo að ég hef tekið þá ákvörðun að ég ætla bara að blogga svona þegar ég hef eitthvað að segja frá sem að verður örugglega mjög sjaldan.

Núna þessa dagana hefur ekkert verið í gangi nema leikritið Lísa í Undralandi þar sem að ég er að sminka þessa efnilegu leikara. Ég hef farið á 3 sýningar + triiilljón æfingar og ég ELSKA þetta leikrit og finnst það æðiæðiæði og ætla mér sko pottþétt af fara aftur ! Samt pínu kjánalegt þegar ég labbaði útaf seinustu sýningu þegar nokkrir leikarar sögðu við mig ; "Hvað ert þú eiginlega búin að sjá þetta oft" hehe Ullandi Þessir leikarar sem að eru í þessu leikriti, öll með tölu eru hreinlega glæsileg þarna uppá sviði og eru búin að búa til svo frábært og skemmtilegt leikrit og eiga sko algerlega skilið klapp á bakið . Svo má náttúrulega ekki gleyma þessari frábæru og vel gerðri förðun, hún setur alveg punktinn yfir i-ið Glottandi


Það sem að er næst á dagskrá er Akureyrarferðin mikla ! Guð minn almáttugur hvað ég er að míga í brækurnar úr spenningi . Þetta verður svooo gaman !!!! Fer norður á föstudeginum með Ómari, Brynjari og Magga. Ekki afþví að ég er kærastamella og bara með kærastanum mínum og hans vinum heldur afþví að mínar vinkonur eru algerir félagsskítar og hættu við að fara ! Því neyðist ég til þess að fara með þeim í bíl í 3kltíma norður, hoho. Svo erum við Brynjar komin með herbergi á Hótel KEA , mmm hvað það verður heavy nice .... Brosandi

Svo er mánuðu eftir af skólanum !!!!!!!! Guð minn almáttugur hvað það er stutt .. :o og ég er ekki ennþá komin með sumarvinnu. og barasta veit ekkert hvar ég ætla að vinna og langar ekki einu sinni að pæla í því !


eeeen , ætla að enda þetta núna og fara ða lúlla mér. en vil samt benda fólki á hvað
www.youtube.com er alveg óótrúlega mikil SNILLD !!!!!!!!

Skrifiði bloopers og það koma endalaus myndbönd sem að ég hef svoleiðis grenjað úr hlátri yfir. Ef að ykkur leiðis ætla ég að setja nokkra linka hérna inns em að þið getið horft á. Hahahhaah ..

http://youtube.com/watch?v=JBZqp98836I

Hahahaha, sjáiði atriði nr. 3, gaurinn sem að ÆTLAR að ná boltanum !

http://youtube.com/watch?v=5P6UU6m3cqk&feature=related

Við þetta fær maður sko alveg bros á vör ..

http://youtube.com/watch?v=055ZA5kGfAs&feature=related

Barn nr. 3, sem að fer inní göngin ! ég hélt að ég ætlaði aaldrei að hætta að hlægja !!!! :'D

http://youtube.com/watch?v=cH2KKRBYIs4&feature=related

í alvörunni, það er allt á youtube ! .. og ef að þið lýtið í dálkinn hægra megin eru full af svona myndböndum. mmmmmm


yfir&út.

blah..

23. mars 2008 klukkan 21:54


pant ekki blogga núna !!!!




æðin mín <3

mjási mjásason

13. mars 2008 klukkan 10:55

Vá hvað maður getur algerlega misst sig yfir www.69.is   og svoleiðis síðum ! Sumt þarna er svo alveg ómótstæðilega fyndið og sumt rosalega töff eða skrítið.
einsog t.d.
þetta   , hahahha !  og svo þetta hérna  , er þetta virkilega satt? er búin að spekúlera þessa mynd og pæla í því hvort að þetta séu pottþétt sömu konurnar. Sumar hverjar eru rosalega feitar á myndinni yrir ofan og svo heavy fine eitthvað í þessum kjólum ! Svo er það þessi leikur , tjah ég veit ekki alveg með þetta skoo ! oog síðan er svo fulltfullt meira ! 


En frá mér er voða fátt að frétta ! Seinasta helgi var fín , á föstudeginum voru ég,ragna,gréta og thelma heima hjá Grétu í stelpukúri, fór svo bara heim um 1 eða eitthvað og snemma að sofa. Á laugardeginum hinsvegar elduðum ég, gréta, ragna og bergey saman heima hjá Grétu . eeeða, elduðum ! við keyptum frosnar pítsur og hentum inní ofninn. nenntum engan veginn að elda Saklaus Svo vorum við bara að spjalla og ákveða hvort að við ættum að fara á esk eða egs . Vorum með ekta stelpuparty með flotta skrautlega drykki og á fullu í magiic fiiiiingers !! hahhaha .. ógeðslega gaman. Svo um hálf 1 leitið var skellt sér á ball. Ragna og Gréta höfðu alltaf verið að tala um hvað var gaman á eskifirði um helgar og ég skildi bara aldrei afhverj, en váá ég skil það núna ! Það var svo óógeðslega gaman , ball með Álbandinu og læti ! hahahha .. ég allavega skemmti mér ýkt mér.
Núna um helgina er svo páskafrí Hlæjandi sweeet , Anja mín kemur á morgun ! Hlakka ekkert smá mikið til að knúsast í henni og kreista á flugvellinum. Hún er orðin svooo stór samt og mér finnst alveg hundleiðinlegt að ég sé að missa af öllu. Hún er bara byrjuð að labba og hlaupa útum allt og orðin hálf fullorðin og meestasta frekja í öllum alheiminum ;/ finnst það ekkert skemmtilegt ! .. og nei margrét, það er ekki í ættinni !! Svo kemur Linda systir næsta miðvikudag og svo fara þær mægður 25 mars, svo að þær verða alveg heillengi. Það verður nú líka tekið djamm í páskafríinu og kannski kúrast eitthvað pínu með kærónum mínum .. ef hann verður heppinn Glottandi  .. Annars er voða fátt að frétta frá mér svo að ég ætla bara að láta þetta gott heita í augnablikinu .. :*

 

Sjá þetta krútt ..


 

Áztin mín . Brosandi


_____________________________________________________________________________________

Click for Full Size View

síðan er bumban hennar Guðrúnar alveg næstum því jafn krúttleg og Anja . tíhí .. lovjú Brosandi

hmm.. ?

12. mars 2008 klukkan 13:17

Hveeeeeeeeeeer í fokkanum er The gossip girl hérna í skólanum ???? ég er orðin ýkt pirruð og vill vita það &Ouml;skrandi


Ég hef fjarvistarsönnun, ég var á rúntinum með Elleni, Grétu og Brynjari um daginn þegar ég fékk sms ! ooog var á leikæfingu eða á rúntinum með Rögnu í gær þegar öll þessi flóknu sms voru að koma !! Hl&aelig;jandi

aafhverju !!?

08. mars 2008 klukkan 01:37

Það er svo hrikalega margt í heiminum sem að ég bara skil ekki !!!?


Ég skil ekki hvernig sumt fólk getur gert allskonar ógeðslega ljóta hluti sem að særa sumar manneskjur svo djúpt en samt komist upp með það . Það er einfaldlega það ógeðslegasta í heimi. Auðvitað gera allir mistök, en ekki trilljón í röð ! Þegar maður fær annað tækifæri á maður að nota það en ekki svíkja það og manneskjuna sem að treysti greinilega svo mikið á þig að hún ákvað að gefa þér tækifæri. 

Ég skil heldur ekki afhverju það þarf að vera til einelti í heiminum ! Mér finnst það svo ógeðslega hrikalega ljótt. Ég skil heldur ekki afhverju sumt fólk einfaldlega getur ekki eignast vini og unglingsárin þeirra fara í það að vera ein. Mér finnst það svo sorglegt að ég næstum því gæti grátið þegar ég hugsa útí það. Afhverju geta ekki allir passað inní einhvern hóp ? Það eru til allskonar vinahópar í skólum í dag, afhverju þurfa sumar manneskjur að standa útúr og ekki komast inní neinn. Það er svooo ljótt....

aaafhverju þarf ME að vera svona hriklega mikill klíkuskóli ? það er alveg ótrúlegt, ef að þið pælið í því (þið sem að eruð í me) þá fattiði það hve rosalegur klíkuskóli þetta er. ég hreinlega vorkenni fólki sem að kemur í þennan skóla og þekkjir engan . það liggur við útskrifast aftur með því að þekkja engan . eða svona........

afhverju þarf líka að vera svona mikið hatur á milli VA og ME ? Hefur einhvertíma verið almennileg ástæða fyrir því ? .. afhverju byrjaði þetta , það hlýtur að vera einhver ástæða, annars er það asnalegt !!?

AFHVERJU Í FJANDANUM þarf peyton að vera svona mikil mellutussa í one  tree hill ??? vá hvað ég verð pirruð útaf henni .. Skömmustulegur

páskafríið er eftir viku, hlaaakkka til já !!!! pant liggja í leti og djamma inná milli allan tímann ! okay og knúsast í önjunni og lindunni svo að þær fari ekki í fýlu <3 tíhí. 
próftaflan mín komin og mér lýst heavy vel á hana ! 4 próf í prófvikunni sjálfri og eru þau 2,6,8&13 maí , fíííínd ! Brosandi 
ég sakna lindu ,  önju, írisar og regínu brjálæðislega mikið ! anja og linda eru reyndar að koma í páskafríinu . svo verð ég að komast suður til þess að knúsast í írisi og regínu !!!! eða íris dögg að þú losnir undan þessu hjónabandi þínu og komir bara austur til mín líka um páskana .. já takk !
já btw, til óhamingju allir sem að eru að fá bílpróf þessa dagana &Ouml;skrandi


p.s. guðrún erla á von á lítilli prinsessu !!!! HlæjandiHlæjandiHlæjandi óógeðslega mikið til hamingju ástin og hlakka til að koma suður og knúsast í bumbunni !!!! :*

tíhí..

26. febrúar 2008 klukkan 16:55


hversu óóógeeeðslega krúttlegt er þetta ???? Sk&ouml;mmustulegur

ég myndi láta þetta dl alveg áður en þið horfið á þetta, annars hikstar þetta svo.
minni a blogg fyrir neðan .....

blah ..

24. febrúar 2008 klukkan 19:20




tíhí, litla múslan strax búin að læra perrasvipinn hennar frænku sinnar :') :* elzka þetta barn .


Jæææja núna ætti kannski að vera kominn tími til að blogga. er búin að langa til að blogga seinustu vikur en aldrei nennt því eða vitað um hvað ég ætti að blogga ! Hehe, svo kíkti ég inná síðuna og sá hvða það var ógeðslega langt síðan ég bloggaði svo að ég ákvað að láta á það reyna....

Seinustu 2 helgar ég er búin að taka ansi rólega :) Seinasta föstudag átti að vera partý hjá Betu og Brynjar kom yfir og svona, svo var hætt við partýið svo að við kúrðumst allt kvöldið svo sendi ég hann heim, nennti ekki að leika við hann lengur Glottandi á laugardeginum var svo partýið og viktor kom yfir og svona. þetta var nú ekkert mikið partý, sátum bara nokkur þarna og einhverjir að drekka. þetta leystist upp um hálf 3 leitið þá fórum ég, konni, brynjar og viktor heim til mín. Viktor fór strax inní herbergi og drapst en ég , konni og brynjar sátum frammi á spjallinu og horfa á tv. svo um hálf 5 leitið kom Ellen og náði í konna og ég og brynjar fórum að lúlla . svo á sunnudeginum fóru ég, brynjar og viktor bara að éta í olís, rúntinn og svo slúðrast með mömmu allan daginn. fórum svo uppá egs um kvöldið Brosandi 

Alla seinustu viku voru svo Opnir Dagar í skólanum og var það ýýkt nice. Þurfti ekki að mæta í skólann fyrr en hálf 6 á þriðjudeginum, á miðvikudeginum fórum við á nesk á íþróttamót á milli ME, VA og FAS og var það mjög gaman. auðvitað rústaði ME þessu en dómararnir og skipuleggjendurnir voru frá Norðfirði svo að þeir drógu einhver stig af okkur og unnu VA-ingar þetta með 27 stig og við vorum með 25 held ég. heheh ...

þessa helgi er ég ekki búin að gera rassgat ! fór á nesk á föstudagskvöldið með grétu og betu að hitta Huldu og Steina minn. aa hvað það var gott :) Fórum heim til ægirs og það var eitthvað lið. Fórum svo heim einhvertíma um nóttina og í gærkvöldi var ég í kúri með mömmu og pabba að horfa á euro og hafa það svo ógeðslega þægilegt. frábært að taka eina svona helgi ....
næsta fimmtudag er svo Barkinn. ég get ekki beeeeeðið eftir því balli . vá hvað það verður ógeðslega gaman ! en það yrði nú heavy fyndið ef að það yrði frestað aftur, tíhí .. ;p

Hann Viktor minn er nú orðinn bara heavy frægur fyrir
tanið  sitt. hehe lovjú:*
oog ég veit ekki alveg, en ég held að ég sé ástfangin af
henni !!!!!! Hissa


takk fyrir bless.



mwah :*

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...